Fyrir aðstandendur

Það getur verið sárt að sjá einhvern sem manni þykir vænt um bregðast reiður við því hvernig maður borðar eða andar. Það hjálpar að vita hvað er að gerast og að það snýst ekki um mann sjálfan.

Hvað er að gerast?

Fyrir manneskju með misophoniu bregst líkaminn við ákveðnum hljóðum eins og eitthvað hættulegt sé á ferð: hjartslátturinn eykst, vöðvarnir spennast og reiði eða viðbjóður hellist yfir. Þetta gerist ósjálfrátt og á sekúndubroti. Það er ekki val, og það er ekki dómur yfir þér.

Það er líka algengt að hljóð frá nánustu fjölskyldu séu erfiðust. Það segir ekkert um tilfinningarnar sem viðkomandi ber til þín.

Það sem hjálpar

Að finna jafnvægið

Það er eðlilegt að vilja hlífa ástvini sínum við kveikjuhljóðum. Rannsóknir á fjölskyldum barna með misophoniu sýna að fjölskyldur aðlaga sig oft mjög mikið, jafnvel meira en fjölskyldur barna með kvíðaraskanir. Þó það sé gert af góðum hug getur of mikil aðlögun viðhaldið vandanum, því sá sem forðast allt fær aldrei tækifæri til að byggja upp þol.

Markmiðið er því ekki að útrýma öllum hljóðum, heldur að finna lausnir sem virka fyrir alla á heimilinu og að styðja viðkomandi í að ná tökum á viðbrögðunum, helst með hjálp fagfólks.

Ef barnið þitt er með misophoniu